One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Vel gerð og lesvæn skáldsaga um vansæla fjölskyldu

Vel gerð og lesvæn skáldsaga um vansæla fjölskyldu

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 28, 2026, 9:01 PM
Vel gerð og lesvæn skáldsaga um vansæla fjölskyldu
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 28, 2026, 9:01 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Gauti Kristmannsson skrifar: Barnsmissir er líklega versta áfall sem nokkur manneskja þarf að þola og það breytir án efa afstöðu fólks til lífsins og dauðans. En það eru ekki aðeins foreldrar sem verða fyrir áfalli, systkini og fjölskyldan eru lostin þessum óvænta og óeðlilega harmi og sú staðreynd markar líkast til öll samskipti innan hennar til frambúðar. Fortíðin fær aðra merkingu eins og vel má lesa í þessari sögu um þetta efni; þetta er fjölskyldusaga um missi sem hangir eins og myllusteinn um háls allra sem í henni eru. Þarna erum við kannski minnt á skáldsögu Tolstojs um Önnu Kareninu sem hefst á þeirri staðhæfingu að allar óhamingjusamar fjölskyldur séu vansælar á sinn hátt á meðan hamingjusamar fjölskyldur séu eins, svo að orð skáldsins séu umorðuð aðeins. Fjölskyldan í þessari sögu er sannarlega vansæl og ekki að ósekju.

Drengurinn Danni batt enda á líf sitt áður en sagan hefst og hann er raunar einn af fimm sögumönnum frásagnarinnar, en þeir skiptast á að segja okkur hana, hver frá sínu sjónarhorni. Þessi faulkneríska aðferð er nokkuð vinsæl nú um stundir og ekkert að því, hún gefur okkur fjölbreytt sjónarhorn á atburði sem ein sögurödd í fyrstu persónu, eða alvitur í þriðju persónu gerir yfirleitt ekki. Aðferðin gefur lesendum líka færi á að kynnast aðalpersónunum sem einstaklingum að glíma við líf sitt og ögranir þess á sama tíma. Helsta ögrun þeirra í þessari sögu er vitaskuld missir Daníels. Fjölskyldufaðirinn, Elías, fyllir í tómarúmið í sálu sinni með klámfíkn, móðirin, Vilborg, berst við að halda fjölskyldunni saman með sameiginlegum máltíðum, dóttirin, Dagbjört, er á fullu í hjónabandi með útlendum manni og tveimur börnum þeirra og loks er það yngsti bróðirinn, Funi, sem er nýkominn úr meðferð og hefur eitthvað lítið við lífið að gera eins og er.…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS