One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandTvöfalt fleiri fá styrk til að kaupa heyrnartæki

Tvöfalt fleiri fá styrk til að kaupa heyrnartæki

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 10, 2026, 7:57 PM
Tvöfalt fleiri fá styrk til að kaupa heyrnartæki
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 10, 2026, 7:57 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Árið 2014 fengu tæplega 1. 100 manns slíkan styrk en í fyrra var fjöldinn kominn upp í um 2. 300 manns, og það stefnir í að fjöldinn verði jafnvel enn meiri á þessu ári. Um leið hafa útgjöld ríkisins vaxið úr um það bil hundrað milljónum - uppreiknað miðað við neysluverðsvísitölu - upp í um 270 milljónir. Kristján Sverrisson lét af starfi forstjóra Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands í vor þegar stöðin var færð undir Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins en er þar enn til ráðgjafar. Hann segir nokkrar skýringar á þessari fjölgun. Hann bendir á að þau sem einu sinni fá sér heyrnartæki, þurfi að endurnýja þau á nokkurra ára fresti. Sjúkratryggingar veita styrk til tækjakaupa á fjögurra ára fresti. Þá hafi vitund um heyrnarheilsu aukist. Um 15. 000-16. 000 manns hér á landi noti heyrnartæki reglulega en reikna megi með að allt að tvöfalt fleiri þurfi í raun á slíkum tækjum að halda.

Einnig hafi aukin markaðssetning af hálfu einkarekinna heyrnarstöðva sitt að segja. Heyrnartæki geta kostað um 800. 000 krónur parið Samkvæmt upplýsingum frá Sjúkratryggingum hefur hlutfall þeirra sem fá styrk til að endurnýja heyrnartæki aukist á síðustu tíu árum - úr um 30% í um 40%. Rúmlega helmingur þeirra sem fá styrk eru á aldrinum 60-79 ára, um þriðjungur er 80 ára eða eldri og innan við 10% eru yngri en sextugt. Heyrnartæki kosta sitt, eða frá um 100. 000 krónum upp í um 800. 000 krónur fyrir parið samkvæmt lauslegri verðkönnun. Fólk sem þarf heyrnartæki í bæði eyru getur fengið 120. 000 krónur í styrk frá Sjúkratryggingum. Afganginn greiðir fólk úr eigin vasa en í flestum tilvikum veita stéttarfélög einnig styrki. Kristján gagnrýnir að greiðsluþátttaka Sjúkratrygginga hafi ekki aukist í takt við betri, fullkomnari en jafnframt dýrari heyrnartæki. Tekjulágt fólk og eldri borgarar veigri sér oft við…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS