Töldu krikketlandslið vera flóttamenn og gerðu aðsúg að hóteli þeirra
What the source reports
Um 30 til 40 manna hópur safnaðist saman fyrir utan hótel í úthverfi Portsmouth á Englandi eftir að orðrómur fór á kreik um að þangað hefði komið rúta með flóttamönnum. Raunin var sú að þarna var á ferðinni landslið Pakistana í krikket skipað leikmönnum 19 ára og yngri. Lögreglan á staðnum staðfesti í samtali við BBC að lögreglan hefði verið kölluð að hótelinu eftir að hópurinn safnaðist þar saman, skömmu fyrir klukkan hálf sjö í gærkvöld að staðartíma. Lögreglan útskýrði fyrir fólkinu sem þangað var komið að áhyggjur þess af komu flóttamanna til borgarinnar væru ekki á rökum reistar. Engin brot voru framin. Hópurinn kom sér á brott skömmu fyrir klukkan níu í gærkvöld.
„Þetta varpar skugga á borgina okkar“ „Einhver sá mynd af hópi sem leit út fyrir að vera útlendingar fara úr rútu og viðkomandi birti myndina á netinu og þaðan kviknaði þetta,“ segir George Madgwick, sveitarstjórnarmaður Umbótaflokksins, í samtali við BBC. „Þetta voru bara getgátur sem voru ekki byggðar á sannleikanum eða staðreyndum. “ Madgwick segir þetta hafa verið mikil mistök. Á Facebook hvatti hann fólk til þess að fara ekki að hótelinu og benti á að hann hefði fengið sannanir frá starfsmönnum hótelsins um að þarna væri krikketlið á ferðinni. Hann neitar því að kynþáttafordómar felist í viðbrögðum við komu krikketliðsins. „Ég held að einhver einn hafi dregið þess ályktun og allir hinir fylgdu henni,“ segir hann um uppákomuna í gær. „Þetta varpar skugga á borgina okkar. Ég vil ekki að hún verði þekkt fyrir svona lagað. “ Frekari öryggisráðstafanir til skoðunar Tveimur dögum fyrr lokuðu…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗