Ætla að auka sýnileika hinsegin fólks á óperusviðinu
What the source reports
„Ég fór að finna það mjög snemma eftir að ég ákvað að verða óperusöngkona að óperurnar sem er verið að flytja um allan heim á þessum stóru sviðum eru mjög einsleitar oft. Ég fór bara að spyrja mig hvort ég ætti heima í óperuheiminum sem hinsegin söngkona,“ segir Íris Björk Gunnarsdóttir, söngkona og framleiðandi hjá hinÓpera sem hefur það að markmiði að skapa óperulist sem endurspeglar samfélagið eins og það er. „Ég áttaði mig á því að það er ótrúlega mikið af fallegum óperum með mjög skýran hinseginleika þar sem er verið að segja sögur hinsegin sögupersóna, ekki bara á milli línanna heldur í sviðsljósinu,“ segir Íris sem hefur rannsakað hinseginleikann á óperusviðinu samhliða söngnum. Óperukompaníið hinÓperan frumsýnir óperuna 27 í Borgarleikhúsinu í kvöld en hún segir ástarsögu eins frægasta bóhemapars 20. aldarinnar, Gertrude Stein og Alice B Toklas.
Íris Björk, Herdís Anna Jónasdóttir og Matthildur Anna Gísladóttir voru gestir Víðsjár í vikunni, þar sem þær sögðu frá verkinu og sungu einn ástardúett. Nýtt íslenskt óperukompaní, hinÓperan, frumsýnir óperuna 27 í Borgarleikhúsinu í kvöld en hún fjallar um samband Parísarbóhemanna Gertrude Stein og Alice B. Toklas. Víðsjá tók tónlistarstjóra verksins og tvær söngkonur tali í vikunni. Sýnileiki lykillinn að samþykki Íris segir að sig hafi lengi langað til að setja óperuna upp á Íslandi. Hana langar til að halda áfram að setja upp óperur sem segja sögur hinsegin persóna því það er mikilvægt að hennar mati. „Fyrst að ég þráði að sjá sjálfa mig í mínu uppáhalds listformi þá hljóta að vera aðrir sem hafa sömu þrá og ég tek því mjög alvarlega að vera nógu hugrökk til að ögra bara smá, setja upp verk sem kannski aðrir þora ekki að gera og leyfa hinsegin einstaklingum að spegla sig í listinni sem við erum að skapa. Við verðum…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗