Svarar Njáli Trausta ekki vegna þjóðaröryggis
What the source reports
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra svaraði ekki efnislega fyrirspurn Njáls Trausta Friðbertssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um fjarskiptamál ráðuneytisins. Hún ber við þjóðaröryggi og þjóðréttarlegum skuldbindingum. Njáll Trausti lagði fyrirspurn fyrir alla ráðherra ríkisstjórnarinnar og spurði hvaða farsíma- og gagnaflutningskerfi ráðuneytin og stofnanir þeirra nýttu. Hann óskaði einnig eftir sundurliðun á framleiðendum og stofnunum. Þjóðréttarlegar skuldbindingar á sviði öryggis- og varnarmála Þorgerður svarar því til að utanríkisráðuneytið og sendiskrifstofur þess hagnýti ýmis farsíma- og gagnaflutningskerfi.
Þar sem hluti starfseminnar fari fram í erlendum ríkjum þurfi að huga vel að allri öryggisumgjörð. Auk þess sé ráðuneytið bundið ríkri trúnaðarskyldu um eðli og gerð fjarskiptakerfa vegna þjóðréttarlegra skuldbindinga á sviði öryggis- og varnarmála. „Sökum þjóðaröryggis, trúnaðar- og netöryggissjónarmiða er ekki hægt að sundurliða sérstaklega hvaða framleiðendur er um að ræða. “ Gæti nýst til netárása Ráðherrann segir að upplýsingar um hvaða upplýsinga- og fjarskiptakerfi ráðuneyti og stofnanir noti í daglegum rekstri séu viðkvæmar út frá netöryggissjónarmiðum, jafnvel þó að slík upplýsingagjöf geti virst hættulaus ein og sér. „Slíkar upplýsingar gera ógnaraðilum…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗