One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Repúblikanar ósáttir við nafnarugling í boði Demókrata

Repúblikanar ósáttir við nafnarugling í boði Demókrata

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 29, 2026, 1:05 PM
Repúblikanar ósáttir við nafnarugling í boði Demókrata
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 29, 2026, 1:05 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Ríkisstjórinn í Alaska, Repúblikaninn Mike Dunleavey, vill láta rannsaka hvort Mary Peltola, frambjóðandi Demókrata til öldungadeildar Bandaríkjaþings, verði ákærð eða beitt viðurlögum fyrir að kalla til meðframbjóðanda sem gæti hrifsað atkvæði frá sitjandi þingmanni Repúblikana og ruglað kjósendur í ríminu. Yfirlýsing Dunleavey kemur eftir umfjöllun The New York Times um að kosningateymi Peltola hefði af ráðnum hug ákveðið að fá eftirlaunaþegann Dan J. Sullivan til að bjóða sig fram gegn Dan S. Sullivan, öldungadeildarþingmanni Repúblikana.

Dunleavy sagði í færslu á X að tilraun til að blekkja kjósendur til að greiða einhverjum öðrum atkvæði sitt græfi undan kosningakerfinu og heiðarleika í stjórnmálum og sagði hverja þá sem fremdu lögbrot þurfa að standa reikningsskil gerða sinna. Áður hafði Donald Trump forseti krafist þess að Mary Peltola stigi til hliðar og skyldi ákærð, án þess að tilgreina hvaða glæp hún ætti að hafa framið. Athæfið væri kosningasvik af versta tagi. Trump vildi líka að nafn Demókratans Sullivans yrði fjarlægt af kjörseðlinum fyrir kosningarnar næsta þriðjudag. Báðir frambjóðendurnir sem heita Sullivan verða á kjörseðlinum, ásamt Peltola og fjórða frambjóðandanum, Gerald Heikes. Greinendur segja þrautina þyngri að sanna að nokkuð lögbrot…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS