One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna

Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 28, 2026, 8:11 PM
Óvíst hvort fjármagn fylgi fjölgun lögreglumanna
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 28, 2026, 8:11 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Lögreglumönnum fjölgað um 50 á hverju ári til 2031 Fjölga á lögreglumönnum um 50 á ári samkvæmt nýrri löggæsluáætlun til ársins 2031. Þá eiga lögreglumenn að vera orðnir rúmlega 1000 talsins. Á sama tíma á að fjölga öðrum starfsmönnum embættanna um tæplega 100. Lögreglan vill auka traustið sem nú þegar mælist mikið, úr 79,5 í 82%. Hlutfall menntaðra lögreglumanna á að fara úr 90 í 100%. Þá á einnig að fara í aðgerðir til að koma í veg fyrir að lögreglumenn verði fyrir ofbeldi eða hótun í starfi. Í dag er hlutfallið 58% en á að fara undir 10%. Þetta er einungis brot af þeim mælanlegu markmiðum sem sett eru fram í áætluninni.

Ný löggæsluáætlun gerir ráð fyrir að lögreglumönnum verði fjölgað um 50 á ári fram til ársins 2031. Óvíst er hvort fjármagn fylgir. Frekari fjárframlög ekki sett í verkefnið Á sama tíma og áætlunin gerir ráð fyrir auknum mannafla er einnig bent á að safnast hafi upp umtalsverð innviðaskuld, svo sem í húsakosti. Til dæmis er víða ekki hægt að geyma ökutæki lögreglu innandyra, fangaklefar og aðstaða til þjálfunar eru víða ófullnægjandi sem og aðstaða til leitar í bílum við rannsókn sakamála. Þá er í áætluninni að finna hugmyndir um aukna tæknigetu lögreglunnar. Allt þetta þarf að fjármagna. „Ríkisstjórnin fór auðvitað í það í fyrra að fjölga lögreglumönnum um fimmtíu, það var aðgerð upp á rúman milljarð. Það var varanleg fjárfesting. Núna erum við auðvitað í þeim fasa að reyna að ná fram…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS