Þór/KA heyrir sögunni til í fótboltanum
What the source reports
Akureyrarfélögin Þór og KA hafa nú slitið samstarfi sínu um sameiginlegan meistaraflokk kvenna í fótbolta eftir áratugalangt samstarf. Keppt var undir merkjum Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) á árunum 1993-1998 en Akureyrarliðið lék svo undir nafninu Þór/KA árin 1999 og 2000.
Ári seinna kom svo Knattspyrnufélag Siglufjarðar (KS) inn í samstarfið og Þór/KA/KS spilaði í Íslandsmóti kvenna á árunum 2001-2005. Frá 2006 hefur svo Þór/KA átt sæti á Íslandsmótinu og varð Íslandsmeistari tvisvar undir merkjum Þór/KA. Það var árin 2012 og 2017. Íslandsmótið á næsta ári verður því það fyrsta síðan árið 1992 sem Þór og KA tefla fram sitt hvoru kvennaliðinu. Þór verður því í Bestu deildinni á næstu leiktíð en KA verður með lið í 2. deild kvenna. Sjá tilkynningu KA hér . Þar með er…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗