Netárásir á matvöruverslanir víða um Evrópu
What the source reports
Netárás var gerð á tugi matvöruverslana og verslun IKEA í Belgíu í dag. Hitastig kæli- og frystiskápa var hækkað upp úr öllu valdi. Svipaðar árásir voru gerðar í Svíþjóð, Eistlandi og Lúxemborg. Í síðasta mánuði urðu þrjár franskar stórmarkaðskeðjur fyrir netárás með svipuðum hætti. Matvöruverslanir og IKEA urðu fyrir netárásum Stórmarkaðskeðjan Carrefour í Belgíu segir netárásina hafa truflað starfsemi í 15 af 700 verslunum. „Þetta er tölvuárás, það er engin önnur ástæða,“ sagði Mich Vergauwen, talsmaður Carrefour. Delhaize greindi jafnframt frá því að bilun í tölvukerfi hefði haft áhrif á kælibúnað í tugum verslana keðjunnar. Fréttamaður AFP-fréttaveitunnar sagði kæli- og frystiskápa í einni af búðum Deilhaize í Bormeerbeek, sem er norðaustur af Brussel, vera tóma. Á þeim hafi verið skilti sem á stóð að vegna tölvuárásar verði ekki boðið upp á neinar kældar eða frystar vörur.
„Við biðjumst afsökunar á þessu. “ Tvær aðrar keðjur, Colruyt og Intermarche, hafa einnig sagt AFP að starfsemi þeirra hafi orðið fyrir áhrifum vegna tæknivandamála sem hafi haft áhrif á fimm búðir hjá Colruyt og 15 hjá Intermarche. Hvorug vildi staðfesta að það væri vegna netárásar. „Í sumum tilfellum var aðeins einn kæliskápur í ólagi þannig að áhrifin voru takmörkuð,“ sagði talsmaður Intermarche. Hann sagði atvikin hafa átt sér stað aðfaranótt mánudags. Talskona IKEA í Belgíu sagði verslun í Mons í suðvestur Belgíu hafa orðið fyrir netárás. Hitastig í kælum og frystum hafi verið hækkað snemma í morgun. Þetta hafi verið eina verslun IKEA sem hafi orðið fyrir áhrifum þar sem hún noti annan þjónustuaðila en aðrar verslanir keðjunnar í Belgíu. Svipar til árása á verslanir í Frakklandi og Hollandi Netárásin náði ekki aðeins til Belgíu. Sænsku stórmarkaðskeðjurnar ICA og Coop sögðust leita að ástæðu…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗