One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Meðalniðurgreiðsla Loftbrúar 9.242 krónur árið 2025

Meðalniðurgreiðsla Loftbrúar 9.242 krónur árið 2025

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 28, 2026, 5:52 PM
Meðalniðurgreiðsla Loftbrúar 9.242 krónur árið 2025
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 28, 2026, 5:52 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Árið 2025 voru rétt rúmlega 80 þúsund flugleggir keyptir með Loftbrú. Kostnaður ríkisins við niðurgreiðsluna nam rúmlega 740 milljónum. Til stendur að gera breytingar á Loftbrú og greiða 9000 krónur af hverjum fluglegg í stað 40%. Verði nýtingin sú sama á næsta ári, með nýja fyrirkomulaginu, mun það kosta ríkið 720 milljónir. Meðalniðurgreiðslan rétt rúmlega níu þúsund Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni var meðalniðurgreiðsla Loftbrúar 9242 krónur árið 2025. Hæsta niðurgreiðsla vegna Loftbrúar að meðaltali var frá Höfn í Hornafirði eða rúmlega 9576 krónur. Þar rétt á eftir komu Akureyri og Egilsstaðir. Aðrir áfangastaðir yfir níu þúsund krónum voru Ísafjörður og Húsavík. Lægsta niðurgreiðsla var í flugi frá Vopnafirði og Þórshöfn eða rúmlega fjögur þúsund krónur á fluglegg.

Vert er þó að taka fram að í skýrslu Vegagerðarinnar frá nóvember 2025 segir að ríkið hafi niðurgreitt um 107 þúsund krónur með hverjum farþega á þessum leiðum með ríkisstyrktu innanlandsflugi. Hæsta niðurgreiðsla rétt undir 25. 000 krónum Af þeim 80 þúsund flugleggjum sem voru keyptir með Loftbrú voru 795 sem kostuðu ríkið undir þúsund krónum. Alls voru þrettán flugleggir keyptir þar sem að niðurgreiðslan var yfir 24. 000 krónum. Flestir flugleggir voru keyptir með niðurgreiðslu á bilinu sjö til tíu þúsund krónur, eða 34. 022 alls. „Þetta er bara svart á hvítu, þetta er að bitna mest á landsbyggðinni“ Harkalega hefur verið tekist á um Loftbrúna undanfarna daga en Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, er orðin sátt við niðurstöðuna um 9000 króna niðurgreiðslu: „Auðvitað fréttirnar sem komu fyrir helgi, ég var ekki sátt við þær þegar átti að halda þeim 600 milljónum inn í sem voru settar í fjárlög inn í Loftbrúnni. Ráðherra bætti þar og ætlar að bæta 200 milljónum…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS