Íbúðin í Norðlingaholti mikið skemmd eftir brunann
What the source reports
Slökkvistarfi í Norðlingaholti í Reykjavík lauk um klukkan eitt í nótt en þá fóru síðustu viðbragðsaðilar af vettvangi. Eldurinn kom upp í íbúð á þriðju hæð í fjölbýlishúsi á tólfta tímanum í gærkvöldi og var allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu kallað til. Slökkviliðið var fljótt að ná stjórn á vettvangi og var búið að slökkva eldinn fyrir miðnætti. Þá var hafist handa við að reykræsta íbúðina.
Guðmundur Hreinsson, varðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, staðfestir að einn hafi verið fluttur á slysadeild þar sem hann var skoðaður fyrir reykeitrun. Hann hafði komist út úr íbúðinni upp á eigin spýtur áður en slökkvilið bar að. Þá var hundi bjargað af svölum íbúðarinnar. Á þessu stigi málsins segir Guðmundur að ekki sé vitað hver eldsupptökin voru. Hann getur ekki fullyrt um það hvort íbúðin sé ónýt en hún sé vissulega…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗