Hundi bjargað í eldsvoðanum í Norðlingaholti
What the source reports
Maðurinn sem býr í íbúð sem kviknaði í í Norðlingaholti í gærkvöld flúði íbúðina með því að fara fram af svölum sínum af þriðju hæð. Þetta segir nágranni hans við fréttastofu. Húsið sem kviknaði í stendur við Reiðvað. Maðurinn var fluttur á slysadeild og skoðaður vegna hugsanlegrar reykeitrunar.
Slökkviliðið bjargaði hundi úr brennandi íbúð í Norðlingaholti í gærkvöld. Sá sem býr í íbúðinni komst út með því að fara fram af svölunum. Annar nágranni sem varð vitni að atburðinum í gær segir við fréttastofu að hundur hafi orðið eftir á svölunum. Slökkviliðsmenn hafi reist stiga og komið niður með hundinn um stigaganginn. Þá var búið að ná nægilegum tökum á eldinum til þess að fara þá leið út. Eldurinn…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗