Gagnrýni á frumvarp um leigubremsu komi ekki á óvart
What the source reports
Leigufélög almennt óánægð með takmarkanir á leigu Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir mikilvægt að halda til haga fyrir hverja leigubremsan sé. Hann segir gagnrýni ekki koma á óvart. „Ég veit ekki um nein leigufélög eða neina sem eru að leigja út íbúðir sem eru ánægðir með einhvers konar takmarkanir eða breytingar á leigu,“ sagði Ragnar Þór. Rætt var við hann í Kastljósþætti kvöldsins. Þetta eigi einnig við um óhagnaðardrifin leigufélög. „Það á sér skýringar og er skiljanlegt, óhagnaðardrifnu félögin, eins og Bjarg, sem er þekktast af þeim, og leigufélag Öryrkjabandalagsins og fleiri,“ segir Ragnar. „Þau hafa haft áhyggjur af því að við séum að hækka einu sinni á ári og það sé þá gert með meiri hætti heldur en að fara svona hægari tröppugang upp. Verðtryggðar skuldbindingar sem eru mældar hækka mánaðarlega og ég hef ákveðinn skilning á því.
“ Ragnar hafnar því að hann væri óánægður með þessar breytingar sæti hann hinum megin við borðið sem fulltrúi verkalýðshreyfingarinnar. „Ég hef setið hinum megin borðs og við ræddum þetta mjög mikið á þeim tíma gagnvart óhagnaðardrifnu félögunum. Hvort það kæmi til greina að undanskilja þau frá þessu ákvæði og nú er í sjálfu sér málið í nefnd og á eftir að fara í þinglega meðferð og það er ekkert útilokað í þeim efnum,“ segir Ragnar. „En í grunninn erum við ný ríkisstjórn og að taka við af ríkisstjórn sérhagsmuna. Við erum ríkisstjórn almannahagsmuna. “ „Þetta er fólkið sem við erum að reyna að verja“ Ragnar segir mikilvægt að fólk gleymi því ekki fyrir hverja leigubremsan er. „Það eru um 105 þúsund manns á leigumarkaði, þetta er svona um 30% fullorðinna. Það eru einungis um 22 þúsund leigusamningar sem eru skráðir inn í kerfi HMS. Við teljum að íbúðir mögulega með óleyfisíbúðum séu í kringum 50 þúsund,“…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗