One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Ef frammistaðan er góð er allt hægt í þessu

Ef frammistaðan er góð er allt hægt í þessu

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 30, 2026, 2:03 PM
Ef frammistaðan er góð er allt hægt í þessu
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 30, 2026, 2:03 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Arnar má taka með sér 18 leikmenn á lokamótið og 16 þeirra spila hvern leik. Hann valdi hins vegar aðeins 17 í dag og segir það eiga sér skýringar. „Við erum búin að vera að fá leikmenn tilbaka eftir meiðsli, sem eru reyndar á mjög góðri leið. Ég hef ekki neinar væntingar um annað en að þær verði 100% klárar þegar að þessu móti kemur,“ segir Arnar. „Við vildum hafa þetta opið og eins líka, það er mánuður í mót, þannig að við teljum okkur hafa smá svigrúm til að bíða aðeins með þetta,“ bætir hann við. Viðtalið við Arnar má sjá í heild sinni hér að neðan. Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handbolta, segist alltaf jákvæður og bjartsýnn á framfarir og gott gengi liðsins þegar kemur að stórmótum. Hann valdi lið sitt fyrir EM í dag og segir mótið krefjandi verkefni.

Dana Björg ekki með - kemur heim í skoðun lækna landsliðsins Dana Björg Guðmundsdóttir, vinstri hornamaður og leikmaður norska stórliðsins Larvik, verður ekki með á mótinu að þessu sinni. Hún meiddist illa á ökkla í mars og hefur ekki fengið sig góða af þeim meiðslum. Arnar segir meiðsli hennar hafa verið slæm og ætlar að kalla hana hingað heim til skoðunar hjá læknum íslenska liðsins. „Það fylgdi þessu beinmar og alls konar leiðindi. En þetta er of langur tími og því miður kom bakslag í þetta eftir að hún fer aftur út eftir landsliðsvikuna hérna heima síðast, þannig að þetta er búið að taka of langan tíma. Við ætlum að kalla hana heim strax í næstu viku og fá okkar sérfræðinga til að líta á þetta líka. Þannig að við séum að fá annað álit og þá vitum við betur hver staðan er. “ Ég er alltaf jákvæður og bjartsýnn Hópurinn á EM núna er lítið breyttur frá þeim sem fór á HM fyrir ári síðan eftir miklar breytingar fyrir það. 15 af 17 leikmönnum hafa áður verið með á stórmóti. Að auki stigu nokkrir leikmenn…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS