„Ég er í svo miklum hefndarhug að ég á erfitt með mig“
What the source reports
Íris Helga Jónatansdóttir segist ekki hafa hvatt mann til þess að ata skít á heimili eins mannanna sem sakað hafa hana um umsáturseinelti. Hún er ásökuð um að hafa beitt mennina umfangsmiklu umsáturseinelti á árunum 2022 til 2025. Aðalmeðferð í máli hennar hófst í dag og stendur fram í næstu viku. Krafa gerð um frávísun Einn maður er meðákærður í málinu og er honum gefið að sök að hafa aðstoðað Írisi Helgu í umsáturseinelti sínu. Fram kom í málinu í dag að hann er sakaður um að hafa farið að heimili fyrrum sambýlismanns Írisar Helgu og að hafa þar makað skít á heimili hans og sambýliskonu hans. Verjandi mannsins gerði kröfu um að máli hans yrði vísað frá dómi þar sem óljóst væri hvort allir ákæruliðir málsins tengdust hans hlutdeild í málinu. Dómari hefur ekki tekið afstöðu til þess.
Íris lýsti því yfir að maðurinn væri eini vinur hennar sem ekki hefði snúið við henni baki í gegnum málaferli síðustu ára. Þau hefðu kynnst í gegnum vinnu en hefðu einnig þekkst sem börn. „Skítaverkefni lokið“ Lesin voru upp skilaboð á milli mannsins og Írisar Helgu sem sögðu að þrátt fyrir að talað hefði verið um að maka skít á heimili mannsins hefði hún aldrei hvatt manninn beinlínis til þess að fremja verknaðinn. Í samskiptum á milli þeirra sem lesin voru upp segir maðurinn „skítaverkefni lokið“ og við því svarar Íris Helga: „Omg, sá enginn til þín? “ Og einnig: „Ert svo mikill snillingur! “ Í frekari samskiptum á milli Írisar og mannsins segir hún: „Viðbjóðurinn á afmæli á morgun, hvað eigum við að gefa honum í afmælisgjöf? Ég er í svo miklum hefndarhug að ég á erfitt með mig. “ Og einnig: „Þyrfti no djoke að fá annan svona verknað sem sést í mynd,“ sagði Íris Helga sem sagðist ekki geta svarað hvar hún var að hugsa um á þessum tíma. Í framhaldi af þessu sendi Íris Helga: „Ætlar þú að…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗