Bókin Bestu vinir hlýtur Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur
What the source reports
Rithöfundarnir Eva Rún Þorgeirsdóttir og Blær Guðmundsdóttir hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur í ár fyrir bókina Bestu vinir . Bókabeitan gefur bókina út. Á sjöunda tug handrita bárust í keppnina. Bókin Bestu vinir fjallar um dreng og stúlku sem kynnast þegar stúlkan flytur í næsta hús við drenginn. Í fyrstu líkar honum ekki við stúlkuna en það breytist þegar hún verður sessunautur hans í skólanum. Þau takast saman á við dularfulla ráðgátu sem snýst um atburði í skólanum og óvænt vinátta þróast með þeim. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri afhenti verðlaunin í Höfða í dag. Bókin kemur í verslanir eftir verðlaunaafhendinguna.
Eva Rún skrifaði texta bókarinnar og Blær teiknaði myndirnar og hannaði útlitið. „Við lögðum mikla vinnu í að láta texta og myndir spila saman og er bókin stútfull af myndum. Hugmyndin að bókinni kviknaði eftir ótal mörg samtöl við krakka um vináttu og samvinnu í skólaheimsóknum og sögusmiðjunum okkar,“ segja þær Eva Rún og Blær. Í dómsögn dómnefndar segir að sagan sé vel skrifuð á góðu máli sem hæfi aldri lesenda. Sögupersónur eru vel skapaðar og sagan bæði spennandi og skemmtileg. Dómnefndin segir myndirnar órjúfanlegan hluta verksins og gæði það auknu lífi. „Dómnefnd telur að Bestu vinir geti fallið ungum lesendum vel í geð og veitt…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗