Wolt-málið: Sendlar fá greidd laun til einkahlutafélaga
What the source reports
Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Fréttastofa hefur undir höndum gögn sem sýna fram á þetta. Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin fjalla um notaði félagið eingöngu til að fá greitt frá Wolt. Félag mannsins var stofnað 2023 en varð gjaldþrota 2025. Einn ársreikningur liggur fyrir og er hann fyrir 2023. Þá var félagið með fjögurra milljóna króna rekstrartekjur, allt vegna sendlavinnu fyrir Wolt samkvæmt því sem eigandinn segir sjálfur. Í gögnunum kemur jafnframt fram að fleiri en einn sendill hafi fengið greitt fyrir vinnu sína hjá Wolt í gegnum einkahlutafélag mannsins. Mikil umræða hefur verið um heimsendingarfyrirtækið Wolt síðustu vikuna eftir að sendlar sem keyra út fyrir fyrirtækið lögðu niður störf vegna kjaramála.
Þeir vilja meina að þeir fái greidd laun sem eru undir kjarasamningsbundnu lágmarki og að laun þeirra hafi verið lækkuð um helming á árinu. Fjallað er um Wolt-málið í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér: Dæmi er um að sendlar sem starfa við heimsendingu á mat fyrir Wolt fá greidd verktakalaun til einkahlutafélaga. Sendlarnir lögðu niður störf í síðustu viku. Lögfræðingur hjá ASÍ og sænskur doktorsnemi rekja sögu Wolt og megingagnrýnina á fyrirtækið. ASÍ segir illa ganga að tala við Wolt Stór hluti umræðunnar um Wolt hefur snúist um að sendlarnir stundi gerviverktöku fyrir heimsendingarfyrirtækið. Í einhverjum tilfellum getur gerviverktaka snúist um að það fólk sem vinnur fyrir fyrirtæki fái greiddar verktakagreiðslur persónulega þrátt fyrir að vinnusambandið sé í reynd eins og samband atvinnurekanda og launþega. Wolt er stórt fyrirtæki á Íslandi með um 1000 sendla á sínum snærum. Samhliða þessum fréttaflutningi kemur fram í…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗