One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandVopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgað mikið en mönnun stendur í stað

Vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgað mikið en mönnun stendur í stað

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 24, 2026, 8:04 AM
Vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgað mikið en mönnun stendur í stað
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 24, 2026, 8:04 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Fjöldi vopnaútkalla sérsveitar ríkislögreglustjóra hefur sjöfaldast frá árinu 2014 og voru 424 í fyrra. Mönnun hefur hins vegar lítið breyst frá 2008. Starfandi sérsveitarmenn voru 46 í fyrra, tíu færri en heimild er fyrir. Þetta eru niðurstöður nýrrar greiningar Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi. Vopnaútkall er þegar sérsveitin er kölluð út vegna tilkynningar um vopnaðan einstakling. Slíkum útköllum fjölgaði úr 56 árið 2014 í 424 í fyrra. Hvað er Varða? Varða er íslensk hugveita um þjóðaröryggi og viðnámsþrótt.

Hún vinnur að því að auka þekkingu og efla umræðu um málaflokkinn með rannsóknum, greiningum, útgáfum og viðburðum, að því er segir á vef hugveitunnar. Varða er leidd af Kristni Árna L. Hróbjartssyni, meðstofnanda, og studd af Foobar Foundation. Flest útköllin voru vegna tilkynninga um eggvopn sem áttfölduðust á tímabilinu. Útköll vegna tilkynninga um skotvopn þrefölduðust. Hafa ber í huga að tölfræðin segir til um tilkynningar um vopnaburð, en ekki hvort vopn hafi fundist á vettvangi eða því verið beitt. Þá nær tölfræðin aðeins yfir vopnaútköll en sérsveitin sinnir fleiri sérhæfðum verkefnum. Í greiningu Vörðu segir að mönnun hafi ekki fylgt þessari þróun eftir.…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS