Vopnahlé í Oleshky heldur, annan daginn í röð
What the source reports
Vopnahlé í bænum Oleshky í Kherson í suðurhluta Úkraínu, sem hófst stuttu eftir miðnætti í gær, hefur haldið. Þrátt fyrir að þetta sé lítið skref og einn bær segir úkraínskur þingmaður að þetta sé stærsta skrefið í átt til friðar síðan Rússar hófu allsherjarinnrásina í febrúar 2022. Friðsælla hefur verið í öllu Kherson-héraði eftir að vopnahléð tók gildi. Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, tilkynnti um vopnahléð á föstudag. Í því felst að borgaralegir fulltrúar Úkraínu og Rússlands fari inn í bæinn með mat, lyf, hreint vatn og aðrar nauðsynjar.
Rússar hafa ekki hleypt neyðarvistum inn í bæinn síðan í maí og frásagnir hafa borist af því að fólk svelti. Þá verða þeir íbúar sem það kjósa fluttir á brott. Samkvæmt samningi um vopnahléð verða ekki gerðar árásir á fólk á leiðinni. Ekki hefur verið hægt að flýja bæinn síðan í maí vegna drónaárása og jarðsprengja. Óljóst er hversu margir íbúar vilja yfirgefa bæinn eða hvaða leið þeir yrðu fluttir. AFP-fréttaveitan hefur eftir úkraínskum embættismanni að margir íbúanna vilji vera áfram í bænum og því sé áhersla lögð á að flytja neyðarvistir…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗