Vöruðu við flóttanum til Ceuta degi áður
What the source reports
Spænska leyniþjónustan, CNI, varaði við mögulegum fjöldaflótta fólks frá Marokkó til Ceuta degi áður en af honum varð. Þetta kemur fram í opinberum skjölum sem nýlega voru birt. Reuters greinir frá. Að minnsta kosti 72 þúsund flúðu frá Marokkó til Ceuta 30. og 31. júlí. Flestir syntu kringum landamæragirðingu. Minnst 100 manns létu lífið. CNI greindi yfirvöldum í Marokkó og Ceuta frá því 29. júlí að á samfélagsmiðlum væri fólk hvatt til að fara yfir landamærin daginn eftir. CNI sagði frá því að skilaboðin hefðu ratað til um það bil 180 þúsunda á Facebook og WhatsApp.
„Fyrir þau sem vilja fara yfir er síðasti möguleiki til þess á krúnudaginn klukkan 8. Yfirvöld hafa um annað að hugsa vegna hátíðarhalda og skrúðgangna,“ sagði í einum skilaboðanna. Krúnudagurinn 30. júlí er hátíðisdagur í Marokkó. Þetta kemur fram auk annars í þeim rúmlega 40 skjölum sem voru gerð opinber í kjölfar mikillar gagnrýni á viðbrögðum Pedros Sánchez, forsætisráðherra Spánar. Sánchez hefur haldið því statt og stöðugt fram að ekki hafi verið hægt að sjá atburðina í Ceuta fyrir. Hann sagði meðal annars sagt á þingi að ekkert hefði gefið til kynna umfang yfirvofandi hörmunga. Ekki viðvörun, einungis upplýsingar Miguel Ángel Pérez Triano,…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗