One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Virðast ætla að standa við stóru orðin um að gera vel við strandveiðiflotann

Virðast ætla að standa við stóru orðin um að gera vel við strandveiðiflotann

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 31, 2026, 6:34 PM
Virðast ætla að standa við stóru orðin um að gera vel við strandveiðiflotann
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 31, 2026, 6:34 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Formaður Landssambands smábátaeigenda segir ríkisstjórnina virðast ætla að standa við stóru orðin um að gera vel við strandveiðiflotann. Innviðaráðherra hefur óskað eftir umsögnum um áform um breytingu á lögum um byggðatengdar veiðiheimildir. Áformin sem innviðaráðherra birti í samráðsgátt eru ekki drög að frumvarpi heldur hugmyndir og því segir Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, erfitt að leggja mat á þau. Hann segir ráðherra hafa lofað góðu samráði.

„Við verðum bara að sjá til en það virðist vera eins og þessi ríkisstjórn ætli bara að standa við sín loforð um að gera vel við strandveiðiflotann. 72,3% þjóðarinnar vilja bæta í strandveiðipottinn og þetta virðist bara vera ríkisstjórn sem skilur það og hlustar á það og ætlar að gera það,“ segir Kjartan. Þá segir hann gott að það virðist engin áform um að leggja af línuívilnun - sem í stuttu máli er umframkvóti handa þeim sem skapa störf með því að láta handbeita og stokka upp línu í landi.…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS