Vill þjóðarátak til að útrýma fátækt barna á Íslandi
What the source reports
Barnamálaráðherra vill ráðast í þjóðarátak gegn fátækt barna á Íslandi og segist finna fyrir mikilli samstöðu um markmiðið. Hún vill að tveir til þrír milljarðar króna, sem nú renna til hátekjufólks í formi barnabóta, verði þess í stað nýttir til að styðja við tekjulægstu foreldrana. Fátækt barna hér á landi og staða barnafjölskyldna var rædd á málþingi í Veröld, húsi Vigdísar, í dag.
Tíu þúsund og fimm hundruð börn búa á heimilum undir lágtekjumörkum og 30 prósent barna einstæðra foreldra búa við fátækt. „Það er algjörlega óviðunandi. Við erum að horfa til efnaminnstu foreldranna og þeirra sem eru að skrapa botninn þannig að það er ýmiss kerfisstuðningur, húsnæðisstuðningur, barnabótakerfin okkar og það sem berlega hefur komið í ljós eru besti og mesti stuðningurinn. “ Áhersla verður lögð á átak í íþróttum og tómstundum almennt í aðgerðaáætlun til 2031 svo öll börn fái tækifæri til að njóta sín óháð fjárhagsstöðu heimilanna. „Við erum að setja 21 milljarð í barnabótakerfið á næsta ári, þar af…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗