Vilja að Daði Már svari fyrir ásakanir um ósannindi og spillingu
What the source reports
Þingmenn stjórnarandstöðunnar fóru hörðum orðum um Daða Má Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, við upphaf þingfundar í dag. Þeir sögðu orðið ljóst að ráðherra hefði sagt þinginu ósatt eða talað með mjög villandi hætti þegar hann tjáði sig um starfslok Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, í þingsal. RÚV greindi frá því í gær að Hörður hefði gert athugasemdir við starfshætti stjórnar fyrirtækisins og fjármálaráðuneytisins frá því í lok síðasta árs. Hann taldi afskipti stjórnarinnar óeðlileg og taldi að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í viðtali við RÚV í morgun að Daði Már þyrfti að svara betur fyrir afsögn Harðar. Hann hafi ekki sagt satt og rétt frá um aðdraganda og ástæður uppsagnar Harðar.
Liggur fyrir að upplýsingarnar voru ekki réttar Guðlaugur Þór tók fyrstur til máls við upphaf þingfundar í dag og síðan fylgdi hver þingmaður stjórnarandstöðuflokkanna á fætur öðrum í fótspor hans. Hann vísaði til orða Daða Más á Alþingi þegar hann var spurður út í starfslok Harðar. „Nú liggur það fyrir að þær upplýsingar sem hæstvirtur ráðherra gaf þinginu eru ekki réttar. Þær eru ekki réttar. “ Guðlaugur Þór sagði að Daði Már hefði sagt með miklum þjósti að öll sagan væri sögð og að forsætisráðherra Landsvirkjunar hefði ekki hrökklast úr starfi. Guðlaugur Þór sagði að það væri augljóslega ekki rétt. Guðlaugur Þór sagði að Daði Már þyrfti að mæta fyrir þingið strax í dag. „Þetta mál þolir enga bið. “ Fundahöld ráðherra með stjórn koma á óvart Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, sagði það hafa komið á óvart að stjórn Landsvirkjunar hefði níu sinnum fundað með fjármálaráðherra án þess að forstjóri fyrirtækisins væri viðstaddur. Hún sagði að bragur væri á því að ráðherra kæmi…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗