„Við viljum að farið verði vel með hverja krónu“
What the source reports
Björg Magnúsdóttir forseti borgarstjórnar segir hagræðingu í rekstrinum vera til þess að geta aukið fjárfestingu í hverfum borgarinnar. „Og bætt í skemmtilegu verkefnin til framtíðarinnar. Það er enginn að hagræða að gamni sínu og það er ekki skemmtilegt að segja upp hæfu fólki sem fer nú að gera eitthvað og velta við hverri steinvölu í kerfinu,“ segir Björg. „Við erum að gera þetta til þess að geta farið í fjárfestingu inni úti í hverfunum. Við höfum þar sérstaklega talað um grunn- og leikskóla, íþróttamannvirkin, gangstéttir, sundlaugarnar. “ Björg segir eignasafn borgarinnar mjög umfangsmikið sem sinna þurfi. „Reykjavíkurborg hefur ekki verið frábær eigandi að öllum þessum eignum og þessu viljum við snúa við. “ „Við vitum það að Reykjavíkurborg á uppundir 400 fasteignir víða um borgina.
Við ætlum að fara yfir þær með skipulegum hætti og kanna hvort þar er eitthvað úr eignasafninu sem mætti losa og koma í hendur annarra, atvinnulífs, einkaaðila eða einhverra sem geta þá nýtt þær byggingar með öðrum hætti. “ Forseti borgarstjórnar segir fyrirhugaðar hagræðingaraðgerðir til þess gerðar að geta farið í framkvæmdir tengdar skólum, íþróttamannvirkjum og gangstéttum í hverfum borgarinnar. Vel þurfi að fara með hverja krónu. Sveitarfélög eigi ekki að blanda sér í samkeppnisrekstur Björg segir Viðreisn hafa lagt áherslu á að selja hjúkrunarheimilið Droplaugarstaði, sem Reykjavíkurborg rekur. Það sé verkefni á vegum ríkisins. Hún nefnir að vel hafi tekist til við sölu Perlunnar á síðasta kjörtímabili, sem sé dæmi um eign sem borgin þurfi ekki að eiga. Björg áréttar fyrirhugaða sölu borgarinnar á Carbfix og Ljósleiðaranum. „Þetta eru dæmi um fyrirtæki sem eru í samkeppnisrekstri. Það er alveg skýrt hjá okkur í Viðreisn að sveitarfélög eiga ekki að blanda sér í samkeppnisrekstur…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗