Vísbendingar um að borgin hafi markvisst sagt upp fólki út af veikindum
What the source reports
Formaður Sameykis gagnrýnir ummæli borgarstjóra í Kastljósi og segir ljóst að borgin hafi farið of geyst í uppsagnir. Auk þriðju hrinu uppsagna hjá Reykjavíkurborg í vikunni hafa borist fréttir af fjölda uppsagna á opinberum markaði. Tíu starfsmönnum Sorpu var sagt upp í gær og sjö fengu tímabundna ráðningarsamninga ekki endurnýjaða. Sjúkratryggingar Íslands fækkuðu um sjö stöðugildi og uppsagnir voru hjá ÁTVR í vikunni. Stöðugildum í miðlægri stjórnsýslu Reykjavíkurborgar var fækkað um 74 á þriðjudaginn og 50 sagt upp. Kári Sigurðsson formaður Sameykis hefur gagnrýnt hvernig Reykjavíkurborg stóð að uppsögnunum og segir borgarstjóra hafa farið með rangt mál í Kastljósi.
Það var áhugavert að Hildur borgarstjóri hafi komið í viðtal í Kastljósi og talað um að þau hafi ekki þurft að bakka með neitt og fullyrt það í beinni útsendingu, þegar ég er með staðfestar upplýsingar frá Reykjavíkurborg um að það sé ekki rétt. Bíða enn rökstuðnings á uppsögnum Kári segir borgina hafa boðið sjö manneskjum störf sín til aftur eftir uppsagnirnar, sem hafi ekki staðið til í upphafi. Því eigi ekki að blanda saman við tilfelli þar sem starfsmönnum voru boðin störf samhliða uppsögn. Hann viti ekki hvort borgarstjóri hafi einfaldlega ruglast en málflutningurinn beri keim af því að meirihlutinn reyni að hylma yfir að farið hafi verið allt of geyst í breytingarnar. Margt félagsfólk Sameykis bíði enn rökstuðnings fyrir uppsögnum, sumir síðan í júní. „Ég held að þau séu í bölvuðum vandræðum vegna þess að þarna eru þau að lenda í vandræðum með fólk sem þau hafa sagt upp og hafa meðal annars farið í öfugt hæfnismat og eru núna búin að mála sig í horn og mögulega baka sér einhvers konar skaðabótaskyldu. En það á eftir að koma í ljós seinna meir og ég ætla ekkert að fullyrða um slíkt strax. “ Grafið…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗