Við erum að reyna að fóta okkur í þessum hlutverkum
What the source reports
Ísak og félagar í íslenska liðinu mæta Eistlandi í fyrsta leik C-deildar Þjóðadeildar UEFA á laugardag. Ísak segir það vissulega ekki ákjósanlegt að vera í C-deildinni en í því felist líka tækifæri, eins og Svíþjóð sýndi þegar þeir komust á HM í sumar. „Ef maður lendir í fyrsta sæti í Þjóðadeildinni þá gefur þetta næstum því 100% play off inn á EM. Þannig að það er gríðarlega mikilvægt að vinna þennan riðil og stefnan er sett á það,“ segir Ísak í samtali við RÚV. Innslagið allt með Ísaki má sjá hér að neðan. Ísak Bergmann Jóhannesson, landsliðsmaður í fótbolta, segir sig og aðra af yngri kynslóð landsliðsins vera að finna sig betur í leiðtogahlutverkunum. Hann er að verða pabbi og hlakkar mikið til. „Við erum að þroskast“ Þrátt fyrir að vera tiltölulega nýorðinn 23 ára hefur Ísak þegar spilað 44 landsleiki.
Hann og liðsfélagar hans, Hákon Arnar Haraldsson og Orri Steinn Óskarsson eru allir á svipuðum aldri og hafa tekið við leiðtogahlutverkum í liðinu á síðustu misserum. „Orri er orðinn fyrirliði, Hákon varafyrirliði. Ég reyni að bakka þá upp eins mikið og ég get. Já, klárlega, við þurfum að stíga upp sem leiðtogar í hópnum. Auðvitað erum við ennþá með Aron [Einar Gunnarsson] og Gylfa [Þór Sigurðsson] sem við getum lært af. Við erum að reyna að fóta okkur í þessum hlutverkum. “ Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari, hefur sagt í viðtölum að þessir leikmenn, og fleiri til, séu að þroskast úr því að vera krakkar yfir í að verða menn. Hluti af því er foreldrahlutverkið en Ísak og unnusta hans, Agnes Perla Sigurðardóttir, eiga einmitt von á sínu fyrsta barni. „Ég er ótrúlega glaður, þetta er það besta sem maður getur upplifað þegar kemur að því. Orri er náttúrulega orðinn pabbi. Við erum að þroskast, það er alveg rétt, utan vallar sem innan. “ Eiginlega allir í ættinni…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗