„Við erum að læra að lifa með þessari náttúruvá“
What the source reports
Hægt er að taka næstu skref í átt að endurreisn Grindavíkur samkvæmt nýju áhættumati almannavarna. Forsendur eru fyrir fasteignakaupum bæjarbúa og skólahaldi. Bæjarstjóri segir mikla eftirspurn Grindvíkinga að kaupa hús sín tilbaka. Stór skref tekin með nýju áhættumati Fyrstu niðurstöður nýs áhættumats fyrir Grindavík hafa verið birtar og gera ráð fyrir því að hægt sé að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur húsnæði í bænum. Þá séu einnig forsendur fyrir skólahaldi í bænum en Grindvíkingar hófu skólahald á ný í haust þrátt fyrir að fyrra áhættumat hafi mælt gegn því. Forsætisráðuneytið og Grindavíkurbær hafa boðað til opins fundar í Grindavík í kvöld þar sem niðurstöðurnar verða kynntar Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, og Pétur Markan, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, ræddu við Ragnar Jón Hrólfsson fréttamann fyrir fundinn.
„Þetta eru fordæmalausir atburðir sem Grindvíkingar hafa gengið í gegnum. Þetta eru náttúruhamfarir sem hafa tekið mörg ár,“ segir Runólfur. „Nú er staðan þannig að þó að þessi atburður sé enn í gangi, það er enn kvikusöfnun undir Svartsengi, þá erum við að taka þau skref að við erum að læra að lifa hér með þessari náttúruvá. Það er kannski stóra skrefið sem við erum að taka núna. “ Hægt er að taka næstu skref í átt að endurreisn Grindavíkur samkvæmt nýju áhættumati almannavarna. Forsendur eru fyrir fasteignakaupum bæjarbúa og skólahaldi. Bæjarstjóri segir mikla eftirspurn Grindvíkinga að kaupa hús sín tilbaka. Mikil tímamót Runólfur segir fjölmarga áhættuvísa í matsvinnunni liggja til grundvallar. „Við þurfum að vakta náttúruvána, Veðurstofan gegnir þar lykilhlutverki. Við þurfum að hafa gott viðbragð, viðbragðsaðila, og þá er ég ekki eingöngu að tala um lögreglu, björgunarsveitir og slökkvilið heldur…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗