One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli

Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 3, 2026, 2:33 PM
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 3, 2026, 2:33 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Ökukennari í Rangárvallasýslu furðar sig á þeirri ákvörðun Samgöngustofu og Frumherja að hætta að leyfa þeim sem eru að læra á bíl að taka ökupróf, verkleg og bókleg á Hvolsvelli eins og gert hefur verið í þrjátíu ár. Nú þarf annað hvort að fara á Selfoss eða Höfn til að taka prófin. Verklegu og bóklegu ökuprófin hafa farið fram til fjölda ára á Hvolsvelli fyrir þá ökunemendur sem búa í Rangárvallasýslu eða Vestur-Skaftafellssýslu en nú hefur það verið aflagt. Prófað hefur verið á Hvolsvelli af starfsfólki Frumherja fyrir hönd Samgöngustofu. Guðni Ragnarsson, ökukennari, sem býr á Guðnastöðum í Landeyjum hefur vakið athygli á málinu með bréfi til sveitarstjórna.

Hann er mjög óánægður með þessa breytingu. „Þetta minnkar náttúrlega þjónustuna við svæðið töluvert og verður miklu dýrara fyrir nemendur að fara alltaf á Selfoss í bókleg og verkleg próf, ég tala nú ekki um frá Vík og þar fyrir austan. Sumir nemendur þurfa að fara tvisvar til þrisvar í próf ef þeir ná kannski ekki í fyrsta þannig að þetta er orðinn töluverður kostnaður,” segir Guðni. Guðni segir að þjónusta Frumherja á Hvolsvelli hafi verið til fyrirmyndar og skilur ekki þessa ákvörðun. En veit hann af hverju hún var tekin? „Ætli þetta sé ekki bara einhver hagræðingarkrafa hjá þeim. Þetta hætti bara í byrjun síðasta mánaðar mjög óvænt. Fólk var bara að fara í próf og var bara tilkynnt að það…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS