One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandVerkfall hefst að óbreyttu á miðnætti: Flugmenn og flugfreyjur lýsa yfir stuðningi við flugvirkja

Verkfall hefst að óbreyttu á miðnætti: Flugmenn og flugfreyjur lýsa yfir stuðningi við flugvirkja

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 22, 2026, 7:11 PM
Verkfall hefst að óbreyttu á miðnætti: Flugmenn og flugfreyjur lýsa yfir stuðningi við flugvirkja
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 22, 2026, 7:11 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Enn ber talsvert í milli í kjaradeilu Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair og engir fundir hafa verið boðaðir. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um inngrip stjórnvalda. Að óbreyttu stefnir í að ótímabundið verkfall flugvirkja hefjist á miðnætti. Þreifingar í dag en engin niðurstaða Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari, segist í samtali við fréttastofu hafa hvorki séð ástæðu til að boða til fundar í dag né veita viðtal. Hann hafi ekkert að segja um stöðuna nema það að enginn samningsgrundvöllur sé í augnsýn. Fulltrúar samningsaðila vildu ekki veita fréttastofu viðtal í dag. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, staðfesti þó að þreifingar hafi átt sér stað í dag, en engin niðurstaða. Öllum flugferðum Icelandair sem eiga að fara í fyrramálið, bæði innanlands og millilanda, verður aflýst í kvöld ef af verkfalli flugvirkja verður.

Eftir það á að meta aðstæður eftir því sem á líður, samkvæmt svari frá Icelandair. Áherslan á samningaviðræður, ekki afskipti ríkisstjórnarinnar Um 15 þúsund farþegar fara með flugi Icelandair að jafnaði á sólarhring, í um 110 ferðum, þar af tuttugu innanlands. Yfirvofandi verkfall og afleiðingar þess voru rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun. Alþingi getur sett sérstök lög sem banna, stöðva eða fresta verkfalli ef meirihluti Alþingis samþykkir slíkt frumvarp. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vildi ekki staðfesta að slík umræða hefði átt sér stað á fundinum né svara því á hvaða tímapunkti væri rétt að ráðast í slíka lagasetningu. Áherslan væri á samningaviðræður, ekki afskipti ríkisstjórnarinnar. FÍA og FFÍ styðja flugvirkja Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Flugfreyjufélag Íslands (FFÍ) lýsa yfir fullum stuðningi við flugvirkja í kjarabaráttunni og við boðaðar verkfallsaðgerðir. „Verkföll eru ávallt neyðaraðgerð þegar…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS