Verkfall flugvirkja hafið - Icelandair aflýsir 26 flugferðum
What the source reports
Icelandair hefur aflýst öllum brottförum frá Keflavík og Reykjavík í fyrramálið vegna verkfalls flugvirkja sem hófst á miðnætti. Um er ræða að 26 flugferðir frá Keflavík til Evrópu og til baka og fimm flugferðir innanlands frá Reykjavík og til baka. Samtals hefur þessi aðgerð áhrif á hátt í 5. 500 farþega. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem send var á fjölmiðla.
„Félagið vinnur nú hörðum höndum að því að endurbóka farþega og hvetur fólk að fylgjast vel með og tryggja að samskiptaupplýsingar séu réttar,“ segir í tilkynningunni. „İ kjölfarið verða ákvarðanir teknar skref fyrir skref eftir því sem fram vindur, en alltaf með nægilegum fyrirvara þannig að farþegum sé ekki stefnt út á flugvöll að tilefnislausu, það er með að minnsta kosti 4-6 klst fyrirvara. Að sama skapi verður tímabil sveigjanlegra endurbókana uppfært eftir því sem staðan þróast,“ segir í tilkynningunni. Ekki boðað til fundar í gær Ástráður Haraldsson…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗