One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Var myrtur en ósannað að vinurinn hafi verið að verki

Var myrtur en ósannað að vinurinn hafi verið að verki

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 4, 2026, 2:53 PM
Var myrtur en ósannað að vinurinn hafi verið að verki
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 4, 2026, 2:53 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Héraðsdómi Reykjaness þykir ekki sannað að Georgios Ntentes hafi ráðið félaga sínum bana á heimili hans á Kársnesi í nóvember í fyrra. Hann var sýknaður af ákærunni í morgun en dómurinn klofnaði því einn dómari vildi sakfella Georgios. Í dómi héraðsdóms , sem er 108 blaðsíður, kemur fram að ekki verði komist að annarri niðurstöðu en að hinn látni hafi ekki verið einn í íbúð sinni í aðdraganda dánarstundar og að dómurinn velkist ekki í vafa um að honum hafi verið ráðinn bani. Meirihluti dómsins taldi hins vegar að engar beinar sannanir lægju fyrir um að Georgios hafi myrt hann föstudagskvöldið 28. nóvember í fyrra. Georgios, sem er grískur ríkisborgari, og hinn látni, Portúgali, höfðu þekkst í nokkur ár og voru ágætir vinir. Georgios heimsótti hinn látna á heimili hans umrætt föstudagskvöld. Hann var hjá honum í rúma klukkustund og sagði þá hafa slakað á og neytt fíkniefna saman.

Hann neitaði því að komið hefði til átaka milli þeirra. Nágrannar mannsins könnuðust ekki við að hafa heyrt skarkala eða önnur hljóð berast frá íbúðinni á þeim tíma sem Georgios var þar, en fyrir liggur að allt var á rúi og stúi og ummerki um að mikið hefði gengið á í íbúðinni þegar maðurinn fannst látinn sunnudagsmorguninn 30. nóvember. Dánarstund óljós Stjarfamæling á líkinu gaf ekki nákvæmlega til kynna hve lengi hann hefði verið látinn þegar hann fannst. Réttarlæknir gat ekki útilokað að hann hefði verið á lífi á laugardeginum 29. nóvember eða þann möguleika að hann hefði látist eftir miðnætti 30. nóvember, daginn sem hann fannst. Ákæruvaldið byggði mál sitt aðallega á því að blóð úr Georgios hefði fundist á vettvangi, sem og blóðug skóför úr tveimur mismunandi skópörunum svipuðum þeim sem Georgios átti hafi fundist á vettvangi. Georgios sagði að hann hefði hlotið skurðina við mismunandi…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS