One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Væntir þess að úrskurður í máli sex landeigenda á Seyðisfirði sé fordæmisgefandi

Væntir þess að úrskurður í máli sex landeigenda á Seyðisfirði sé fordæmisgefandi

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 29, 2026, 8:03 AM
Væntir þess að úrskurður í máli sex landeigenda á Seyðisfirði sé fordæmisgefandi
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 29, 2026, 8:03 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Mörk skipulagssvæðis við strendur Íslands helgast af svokölluðum netlögum og liggja þau 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði. Skipulagssvæði sveitarfélaga nær aðeins út að þessari fjarlægð frá landi og einnig yfirráðasvæði eigenda jarða sem liggja að sjó. Sveitarfélög hafa lengi reynt að fá þessu breytt og vilja hafa frekara skipulagsvald en þarna segir og geta haft um það að segja hvað fer í sjóinn inni í fjörðum. Þá hafa Landssamtök sjávarjarða sömuleiðis lengi kvartað yfir þessum mörkum. Áfangasigur að aðild landeigendanna hafi verið viðurkennd Í átökum um fiskeldi í Seyðisfirði hefur meðal annars verið tekist á um hvort landeigendur sex jarða, þar sem sjókvíar fyrirtækisins Kaldvíkur eru fyrirhugaðar undan landi, eigi aðild að umsókn um byggingarleyfi fyrir þessum mannvirkjum til sjókvíaeldis.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun taldi lengi að svo væri ekki, en í síðustu viku féll úrskurður hjá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála á þá leið að landeigendurnir ættu þarna aðild. Katrín Oddsdóttir, lögmaður fimm landeigenda af sex, telur úrskurðinn marka tímamót. „Kannski er það eitthvað sem við erum að sjá núna með Seyðisfjörð sem er náttúrlega mjög einstakt dæmi þar sem það er mikil andstaða við fyrirhugað eldi. Fólk hefur reynt að koma við andmælum á öllum stigum málsins bara frá því að þessi skipulagstildrög lágu fyrir þar sem var verið að segja: Nú ætlum við að fara að skipuleggja þetta hafsvæði, þá var mótmælt og svo er búið að mótmæla allar götur síðan. En það hefur einhvern veginn ekki náð í gegn. “ „Núna vorum við að vinna ákveðinn áfangasigur sem fólst í að byggingarleyfisumsóknin sem er eina leyfið sem á eftir að gera gefa út fyrir þetta sjókvíaeldi í Seyðisfirði, hún er hjá HMS, sem hefur í tvígang sagt að landeigendur sjávarjarða eigi ekki…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS