Ungverjaland tekið í sátt hjá Uppbyggingarsjóði EES-ríkjanna
What the source reports
Það var nokkuð stór stund í Búdapest síðasta mánudag, þegar fulltrúar EES-ríkjanna, þar á meðal Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs, staðfestu samkomulag Uppbyggingarsjóðsins við ungversk stjórnvöld um styrkveitingar á því framkvæmdatímabili sem nú stendur yfir hjá sjóðnum. Með þessu verður aftur byrjað að greiða framlög úr sjóðnum til verkefna í Ungverjalandi; nokkuð sem var alveg skrúfað fyrir, um miðjan síðasta áratug vegna harðra deilna um stjórnarfar og afskipti þáverandi stjórnvalda af starfsemi Uppbyggingarsjóðsins og þeim félagasamtökum sem nutu góðs af styrkjum sjóðsins. Samningurinn við Ungverjaland er sá síðasti sem EES-ríkin staðfesta við þau fimmtán ríki innan Evrópusambandsins sem fá styrki úr Uppbyggingarsjóðnum á yfirstandandi tímabili framkvæmda. „Fyrir Noreg, þá snýst þetta samkomulag ekki aðeins um fjárframlög.
Eftir tíu ár, þá erum við að endurræsa samskipti okkar við Ungverjaland og opna nýjan kafla í samstarfinu,“ sagði Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, þegar hann skrifaði undir samkomulagið fyrir hönd norskra stjórnvalda í Búdapest. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu skrifaði undir fyrir hönd Íslands. Noregur með meira en 90% af framlögum Noregur stendur undir meira en níutíu prósent af framlögum EES-ríkjanna og veitir þar að auki styrki úr sérstökum uppbyggingarsjóði sem eingöngu er fjármagnaður af norskum stjórnvöldum. Framkvæmdaáætlunin í Ungverjalandi hljóðar upp á 212 milljónir evra (hátt í þrjátíu milljarða króna). Mótframlag Ungverja er fimmtán prósent af heildarupphæðinni, sem varið verður í verkefni í sex málaflokkum. Þar á meðal fara áttatíu milljónir evra í verkefni sem tengjast orkuskiptum. Af þeim áttatíu milljónum sem fara í orkuskiptin eru tíu milljónir evra ætlaðar í verkefni sem snúast um…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗