One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandUm þrjátíu fangar þegar verið sendir úr landi

Um þrjátíu fangar þegar verið sendir úr landi

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 13, 2026, 7:44 PM
Um þrjátíu fangar þegar verið sendir úr landi
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 13, 2026, 7:44 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Brottvísanir erlendra fanga úr landi hafa þegar létt talsvert á fangelsiskerfinu, segir dómsmálaráðherra. Mohamad Th. Jóhannessyni, áður Mohamad Kourani, var vísað úr landi í vikunni eftir að hafa afplánað þriðjung dóms fyrir tilraun til manndráps og líkamsárás. Tímabundin breyting á lögum um fullnustu refsinga sem tók gildi í júní gerir stjórnvöldum kleift að vísa erlendum brotamönnum úr landi eftir að þeir hafa afplánað þriðjung dóms síns gegn því að þeir sæti endurkomubanni á Schengen-svæðið. Dómsmálaráðherra segir brottvísanir úr landi þegar hafa létt talsvert á fangelsiskerfinu. Þrjátíu fangar hafa verið sendir úr landi – þar á meðal alræmdur glæpamaður.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segist ekki óttast að úrræðið sendi þau skilaboð út í heim að hér sé hægt að fremja glæpi án þess að það hafi miklar afleiðingar. „Við erum með ís í maga að taka afgerandi skref til að ná stjórn á fangelsunum og til að losa okkur við menn sem eru hættulegir okkar samfélagi. En þetta er ekki langtímaaðgerð þannig að það eru engin skilaboð út á við og við erum sannarlega ekki eina landið sem er að brottvísa erlendum föngum úr landi að lokinni afplánun,“ segir Þorbjörg. Breytingin fellur úr gildi um mitt næsta ár. Því fylgi vissulega talsverður kostnaður að flytja fanga sem mikið þarf að hafa fyrir, eins og Kourani, úr landi. „Kostnaður við að hafa hann í fangelsi er langtum, langtum meiri. Þessi tiltekni fangi var umtalsvert dýrari í allri vistun heldur en aðrir fangar,“ segir hún. „Það voru skemmdarverk. Það var starfsfólk fangelsanna sem fór í veikindaleyfi vegna þess hversu erfiður hann var. En eins og ég segi, stóra markmiðið:…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS