One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Tvö börn létust í flugslysinu í Flórída

Tvö börn létust í flugslysinu í Flórída

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 3, 2026, 2:32 AM
Tvö börn létust í flugslysinu í Flórída
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 3, 2026, 2:32 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Tvö börn, tveggja og fjögurra ára gömul, voru meðal þeirra níu sem létust þegar lítil flugvél hrapaði á Flórída í gær. Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum greinir frá því að veðurskilyrði hafi sennilega átt stóran þátt í slysinu. Flugvélin, sem var af gerðinni Learjet 60, lagði af stað frá Austin í Texas klukkan 15. 37 að íslenskum tíma og hélt til Bahamaeyja en á leiðinni hrapaði vélin til jarðar á Palm Beach í Flórída. Mikill eldhnöttur gaus upp þegar flugvélin skall á jörðinni.

Aðstoðarflugmaðurinn var tvítug stúlka, Natalia Gadelha Filgueiras, en hún hafði verið með flugpróf frá 17 ára aldri og hafði skráð yfir 1300 flugtíma. Yfirvöld hafa ekki staðfest hverjir voru um borð en nokkrir fjölmiðlar, þar á meðal CNN , herma að fjölskyldumeðlimir þeirra sem létust hafi borið kennsl á þau. Farþegarnir voru tvenn hjón, barnfóstra og börnin tvö. Ísing utan á vélinni Áður en flugvélin hrapaði tilkynnti Filgueiras um ókyrrð. Hún sagði að hitastigið utan vélarinnar væri…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS