Trump ætlar ekki að ávarpa fleiri kosningafundi Repúblikana í eigin persónu
What the source reports
Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar ekki að mæta í eigin persónu á fleiri kosningafundi Repúblikanaflokksins eftir kvöldið í kvöld, heldur ætlar hann að ávarpa mannfjöldann gegnum fjarfundarbúnað. Með þessu er talið að flokkurinn vilji freista þess að ná til fleiri kjósenda síðustu sólarhringana fyrir þingkosningar á þriðjudag en með því að forsetinn þeytist milli fundarstaða.
Trump hyggst þó ávarpa kosningasamkomu á Daytona-strönd í Flórída í kvöld. Forsetinn hóf mikla yfirferð um landið snemma í október með það markmið að auka möguleika á sigri Repúblikana í kosningunum. Bandarískir miðlar segja að löng ferðalög og mikil ræðuhöld séu tekin að taka sinn toll af heilsu forsetans sem varð áttræður í sumar. Meðal annars hefur hann mismælt sig talsvert, gefið frá sér undarleg hljóð og röddin orðið hás. Aðspurður sagði hann hæsina vera vegna…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗