Trump kallar eftir því að ríki segi skilið við Alþjóðlega sakamáladómstólinn
What the source reports
Donald Trump forseti Bandaríkjanna fór um víðan völl í ræðu sinni á fundi í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. Meðal umræðuefna hans var ákall til þeirra þjóða sem eiga aðild að Alþjóðlega sakamáladómstólnum um að segja skilið við dómstólinn. Trump segir Bandaríkin andsnúin „þeirri stjórnlausu stofnun sem kallast Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn“. Þá hét Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna því að leggja dómstólinn kerfisbundið niður. Hann sé óþolandi ógn við fullveldi Bandaríkjanna.
Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn Alþjóðlegi sakamáladómstóllinn tók til starfa í hollensku borginni Haag árið 2002 eftir að 60 ríki höfðu fullgilt Rómarsamþykktina svonefndu. Dómstóllinn dæmir á alþjóðlegum grundvelli í málum einstaklinga sem framið hafa alvarlega glæpi á borð við hópmorð, stríðsglæpi og glæpi gegn mannúð. 125 lönd eru aðilar að Alþjóðlega sakamáladómstólnum en það eru Bandaríkin hins vegar ekki. Það sama á við um nokkur önnur stórveldi, svo sem Rússland, Kína og Indland. Ísrael er ekki heldur aðili að samningnum. Yfirlýsing…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗