Trump gefur lítið fyrir áhyggjur af gervigreind
What the source reports
Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýnir talsmenn þess að hægja á þróun gervigreindar. Mestu máli skipti að Bandaríkin sigri gervigreindarkapphlaupið en ekki Kína. Dario Amodei, forstjóri gervigreindarfyrirtækisins Anthropic, hefur óskað eftir að fyrirtæki í gervigreind taki saman höndum og hægi á þróun tækninnar . Elon Musk, stofnandi xAI, og Sam Altman, forstjóri OpenAI, hafa tekið undir þau orð. Amodei vill til að mynda óháð eftirlit með þróun tækninnar og samhæfingu reglugerða þvert á iðnaðinn og á heimsvísu. Bretinn Jacob Coxon hefur starfað við þróun gervigreindar hjá bæði OpenAI og Anthropic, sem standa að baki forritunum ChatGPT og Claude. Hann sagði starfi sínu lausu hjá Anthropic í vikunni vegna ábyrgðarleysis stjórnenda fyrirtækisins.
Í viðtali við BBC segir Coxon það engar ýkjur að stofnendur gervigreindarfyrirtækja og starfsfólk þeirra telji raunverulega hættu á að tæknin eigi eftir að leiða til útrýmingar mannkynsins. Hann telur talsverðar líkur á að tæknin gæti leitt til dauða okkar allra í náinni framtíð ef ekki hægir á þróun hennar. Bandaríkin verði að leiða þróunina áfram Trump sagði í dag að það skipti höfuðmáli að Bandaríkin héldu áfram að leiða þróun tækninnar en ekki Kína. „Sá sem sigrar gervigreindarkapphlaupið stendur uppi sem sigurvegarinn,“ sagði Trump blaðamönnum á Írlandi. Það komi til greina að gera varúðarráðstafanir á þróuninni. Hins vegar séu neikvæðir hópar að leggja til breytingar sem þeir eigi ekki að gera og ekki verði hrint í framkvæmd. Vill kalla stjórnendur fyrirtækjanna á fund Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗