Tölvuárásir gerðar á forrit Úkraínu og Rússlands sem vara við árásum
What the source reports
Smáforrit sem sendir Úkraínumönnum tilkynningar um yfirvofandi árásir varð fyrir tölvuárás í gær. Úkraínski flugherinn greinir frá þessu. Þrjár tilkynningar bárust með mínútu millibili en sú fyrsta barst klukkan 22. 47 að staðartíma í gær, eða 20. 47 að íslenskum tíma. Í tilkynningunum var fyrst lýst yfir geislunarógn, þá kjarnorkuógn og að lokum hættu á efnavopnaárás. Að því búnu fengu allir notendur tilkynningar sem afturkölluðu fyrri skilaboð og lýst var yfir að engin hætta væri á ferðum.
Flugherinn sendi einnig út tilkynningu á samfélagsmiðlinum Telegram um að forritið hefðisennilega orðið fyrir árás og hvatti fólk til að fylgjast með samfélagsmiðlum hersins og hins opinbera. Önnur árás gerð á rússneskt forrit Nokkrum klukkustundum síðar, eða eftir miðnætti að íslenskum tíma, tilkynnti almannavarnaráðuneyti Rússlands að tölvuárás hefði verið gerð á svipað forrit sem varar Rússa við drónaárásum og öðrum ógnum. „Athugið! Smáforrit rússneska almannavarnaráðuneytisins hefur orðið fyrir umfangsmikilli tölvuárás sem gerir árásarmönnum kleift að senda almenningi falskar upplýsingar,“ skrifaði ráðuneytið á Telegram. Ekki hefur komið fram hvort bein tengsl séu á milli árásanna.…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗