One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Tíu þúsund manns heimsóttu Reykjaböðin í september

Tíu þúsund manns heimsóttu Reykjaböðin í september

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 23, 2026, 4:44 PM
Tíu þúsund manns heimsóttu Reykjaböðin í september
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 23, 2026, 4:44 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Reykjaböðin voru formlega opnuð 5. september síðastliðinn en þau eru staðsett fyrir neðan Kamba í Hveragerði. 40 starfsmenn vinna í böðunum. Það hefur verið meira en nóg að gera frá því að böðin voru opnuð. Jóhanna Hreiðarsdóttir er framkvæmdastjóri baðanna. „Við erum bara að fá virkilega góð viðbrögð, sérstaklega hér úr nærsamfélaginu og hjá Íslendingum, sem við erum virkilega ánægð með og síðan eru líka mjög margir forvitnir erlendir ferðamenn. Fyrst um sinn þá eru þetta um 70 prósent Íslendingar, sem er mjög ánægjulegt,” segir Jóhanna.

Í óformlegri könnun hjá forsvarsmönnum nokkurra baðlóna víðs vegar um landið kom fram að yfirleitt er helmingur gesta erlendir ferðamenn. Bláa lónið sker sig reyndar algjörlega úr en þar eru um 95-98% gesta erlendir ferðamenn. Hvernig lýsir Jóhanna Reykjaböðunum fyrir þá sem ekki þekkja til? „Reykjaböðin eru baðlón, heilsulind og í rauninni bara upplifun, ný upplifun og nýr áfangastaður fyrir innlenda og erlenda ferðamenn á Íslandi,” segir Jóhanna. Jóhanna segir að böðin séu fyrsti áfangi í 11 þúsund fermetra heildstæðri uppbyggingu en þegar hún verður fullbúin verður hægt að taka á móti 700 þúsund gestum á ári. Baðhús og heilsulind eru líka í…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS