One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandTíminn og rappið – svart báðum megin

Tíminn og rappið – svart báðum megin

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 10, 2026, 10:29 AM
Tíminn og rappið – svart báðum megin
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 10, 2026, 10:29 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Davíð Roach Gunnarsson skrifar: Rapparinn Mos Def er kominn til landsins og treður upp á tónleikum í Gamla bíói í kvöld. Gullaldarrapparar frá tíunda áratugnum hafa streymt til landsins undanfarið og það verður ekkert lát á því í haust því von er á vesturstrandartríóinu Tha Alkaholiks þann 7. október í Iðnó. Bandaríski rappparinn Yasin Bey, sem er þó betur þekktur sem Mos Def, spilar í Gamla Bíói í kvöld. Davíð Roach rifjar feril kappans upp í Lestinni á Rás 1. Meðal nýlegra Íslandsvina úr sama hópi eru Pharcyde, Mobb Deep og Talib Kweli sem er einmitt þekktastur fyrir samstarf sitt við Mos Def sem nú er á leiðinni hingað. Að fá margar af helstu rapphetjum æsku minnar á klakann fyrir Íslendinga að berja augum er auðvitað mikill fengur þó að í misgóðu formi séu.

En einhvers staðar djúpt neðan úr vitund óra minna bærast þó myrkari og óvægnari raddir: Sekúndu nær dauðanum, tíminn líður, tikk tokk, tikk tokk, þú ert orðinn gamall og staðnaður auminginn þinn! Þú lofaðir að breytast aldrei í vini pabba þíns sem töluðu ennþá bara um Jethro Tull og Pink Floyd í 90’s-inu! Tíminn og rappið Gullaldarrappið og tímareimin sem það snýr minnir mig á að ég er orðinn of gamall til að hanga með unga, ferska og fallega fólkinu en á sama tíma of mikill eilífðarunglingur og ekki búinn að afreka nóg til að renna mjúklega inn í mína eigin kynslóð. Hvergi kemur þetta betur í ljós en þegar hamborgarastaðir klastra nöfnum og ásjónum helstu rappara tíunda áratugarins á veggina og matseðilinn, rétt eins og Hard Rock og American Style mjólkuðu 20 ára gamalt kúl klassíska rokksins á sínum tíma. Þetta virðist orðinn óumflýjanlegur raunveruleiki endurvinnslukeðjunnar þar sem núna er Wu Tang Clan okkar eigin Rolling Stones, Q-tip og Phife Dog eru Lennon/McCartney öxullinn í A Tribe Called Quest, Nas…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS