One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Telja Vopnabúrið ekki hafa brugðist rangt við

Telja Vopnabúrið ekki hafa brugðist rangt við

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 29, 2026, 1:03 PM
Telja Vopnabúrið ekki hafa brugðist rangt við
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 29, 2026, 1:03 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála, GEV, hefur lokið rannsókn á eldi í búsetuúrræðinu Vopnabúrinu í fyrra og telur að úrræðið hafi ekki brugðist skyldum sínum í tengslum við atvikið. Í fyrrahaust kviknaði í íbúð í Sóleyjarhlíð í Hafnarfirði þar sem Vopnabúrið vistaði 16 ára dreng. Fjallað var ítarlega um einkarekin búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda í Kveik síðasta þriðjudag. Samkvæmt gögnum frá GEV varð drengurinn valdur að brunanum með rafsígarettu. Tveir starfsmenn voru á vakt. Herdís Gunnarsdóttir forstjóri GEV segir að stofnunin hafi rannsakað tilfellið. Sú rannsókn leiddi í ljós að atvikið hefði verið ófyrirséð þar sem starfsmenn hefðu ekki vitað að kviknað gæti í út frá rafsígarettunni.

„Það sem gerðist síðan í kjölfarið á okkar rannsókn og upplýsingum sem við fengum frá Vopnabúrinu var að þau voru tiltölulega fljót að bregðast við og settu upp nýtt verklag, endurskoðuðu sitt verklag og verkferla í kringum umgengni við rafsígarettur, bæði hvernig þær eru geymdar í læstum öryggisskápum og annað slíkt. Þannig að þessi rannsókn endaði með því að við lokuðum þessari rannsókn bara í byrjun mars,“ segir Herdís. Herdís segir að alls hafi sjö ábendingar borist vegna starfsemi Vopnabúrsins frá janúar 2025 til ágúst 2026 en engin kvörtun. Ekki var talin ástæða til að stofna til frumkvæðiseftirlits á þjónustu Vopnabúrsins vegna ábendinganna og er málunum öllum lokið. Fyrrverandi starfsmenn úrræðisins tjáðu sig í umfjöllun Kveiks og sögðu að eigendur spöruðu í þjónustu við börnin á meðan þeir högnuðust sjálfir. Í einu tilviki hafi barn verið látið sofa á dýnu inni í golfhermi í öðru húsnæði fyrirtækisins. Engin viðurlög við því að vista barn án leyfis Vopnabúrið hafði sótt um leyfi hjá Gæða- og eftirlitsstofnun til að vista barn í íbúðinni en var ekki komið…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS