One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Telja samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk

Telja samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 28, 2026, 6:03 PM
Telja samningsbrot að Kópavogsbær hafi málað yfir útilistaverk
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 28, 2026, 6:03 PM
NEWS BRIEF

What the source reports

Stjórn Bandalags íslenskra listamanna telur að samningsbrot hafi átt sér stað þegar Kópavogsbær tók þá ákvörðun að mála yfir Sólarslóð, útilistaverk Theresu Miller. Stjórnin segir að sú ákvörðun hafi verið tekin af Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra án þess að listakonan hafi verið upplýst um fyrirhugaðar aðgerðir. Óásættanlegt sé að ráðist hafi verið í slíkt inngrip í listaverk án þess að fagleg málsmeðferð hafi verið viðhöfð eða viðeigandi samráð. Verkið er á Hálsatorgi í Hamraborg og var opnað 2019.

Verkið samanstóð af tólf línum sem tákna áttu hæstu stöðu sólarinnar á 21. degi hvers mánaðar. Í stað verksins var komið fyrir tilkynningu frá Kópavogsbæ um endurnýjun miðbæjar Kópavogs sem mikið hefur verið tekist á um. Skora á bæinn að endurgera verkið eða efna til samkeppni Í tilkynningu stjórnarinnar segir að samkvæmt samningi Kópavogsbæjar við Theresu Himmer frá 2019 hafi bæjaryfirvöldum verið heimilt að fjarlægja verkið að þremur árum liðnum ef þau treystu sér ekki til að viðhalda því vegna skemmda. Sérstaklega hefði verið tilgreint þar að ekki væri átt við náttúrulega veðrun. Ekki hefði þó séð á verkinu, hvorki vegna veðrunar né…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS