One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Telja að Leó XIV páfi muni aflétta 300 ára bölvun

Telja að Leó XIV páfi muni aflétta 300 ára bölvun

IcelandBy Fréttastofa RÚVNov 3, 2026, 3:40 AM
Telja að Leó XIV páfi muni aflétta 300 ára bölvun
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDNov 3, 2026, 3:40 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Litli ólánsbærinn Zaña í Perú, þar sem um 4000 manns búa, hefur um aldir verið talinn vera undir áhrifum bölvunar. Bæjarbúar binda nú vonir við að heimsókn Leós XIV páfa síðar í mánuðinum muni aflétta bölvuninni. Á tíma spænskra yfirráða var Zaña þekktur fyrir að vera auðugur verslunarbær. Þar voru byggðar margar glæsilegar kirkjur og íbúarnir lifðu í vellystingum. Bærinn er einnig frægur fyrir það að trúboðinn Toribio de Mogrovejo, sem sneri frumbyggjum Perú til kristni, lést þar árið 1606. Seinna varð bærinn reglulega fyrir árásum sjóræningja og árið 1720 var hann gjöreyðilagður í gríðarlegu vatnsflóði. Kirkjurnar hrundu og hrægammar hreiðruðu um sig í rústum þeirra.

Því hafa ýmsar sögur um guðlega refsingu spunnist um bæinn sem sumir rekja til prests sem var myrtur á nýlendutímanum. Morðið á honum er sagt hafa sett bæinn út af hinu kristna sakramenti. Nú eygja bæjarbúar hins vegar von um að hagur þeirra vænkist. Páfinn „kemur heim“ 6. nóvember leggur Leó XIV páfi af stað í 11 daga ferð um Suður-Ameríku. Ferðin verður eflaust strembin þar sem páfinn er að jafna sig eftir aðgerð sem hann undirgekkst vegna lungnakrabbameins. Hann hefur þó ekki viljað breyta ferðaáætluninni. Páfinn byrjar á að heimsækja Úrúgvæ, þá Argentínu og loks Perú, þar sem hann bjó og starfaði í tvo áratugi, þar á meðal sem biskup í strandbænum Chiclayo. Tengsl páfans við…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS