Telja að hátt í hálf milljón deyi vegna aukins hita sem El Niño veldur
What the source reports
Loftslagsvísindamenn telja að meira en fjögur hundruð og fimmtíu þúsund manns deyi næsta hálfa árið vegna aukins hita sem veðurfyrirbærið El Niño veldur. El Niño nú þegar farið að valda tjóni El Niño er þegar farið að valda tjóni á stöðum eins og í Indónesíu og Suður-Ameríku og í gær lýsti ríkisstjóri Kaliforníu yfir neyðarástandi í ríkinu. Veðurfyrirbærið hófst í júní og verður ríkjandi þar til í lok febrúar á næsta ári. Sérfræðingar segja El Niño verða sterkari en nokkru sinni og að loftslagsbreytingar af mannavöldum auki kraft þess enn frekar. Hvað er El Niño? Við venjulegar aðstæður blása staðvindar við miðbaug frá austri til vesturs og ýta hlýjum yfirborðssjó, yfir Kyrrahaf í átt að Indónesíu og Ástralíu. Í El Niño veikjast þessir vindar eða snúast jafnvel við . Þá flæðir hlýi sjórinn aftur til austurs að ströndum Suður-Ameríku.
Þá verður yfirborð sjávar á víðfeðmu svæði í hitabelti Kyrrahafs, frá miðbiki til stranda Suður-Ameríku, óvenjuhlýtt í nokkra mánuði eða lengur. Það veldur því að loftið við sjóinn verður heitara og rakara. El Niño lét síðast á sér kræla 2023 og 2024, það síðarnefnda er einmitt heitasta ár á jörðinni frá upphafi mælinga. Alþjóðaveðurfræðistofnunin telur að veðurfyrirbærið geti valdið því að 2027 gæti orðið heitara en 2024. Loftslagsvísindamenn hjá Climate Impact Lab við háskólann í Chicago áætla að aukinn hiti vegna veðurfyrirbærisins geti dregið 451 þúsund manns til dauða á næstu sex mánuðum. Vísindamennirnir áætluðu dauðsföllin eftir landsvæðum og því gefur það skýra vísbendingu um hvar sé hægt að grípa til ráðstafana til að bjarga mannslífum. Til dæmis að gera betri veðurspár, útbúa neyðarskýli fyrir fólk með kælistöðvum og fjölga heilbrigðisstarfsfólki á heitustu tímunum. Michael Greenstone, einn meðhöfunda skýrslunnar, segir 451…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗