One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
⌕
LATEST
Home› Iceland› Talningu lokið og strembin stjórnarmyndun fram undan

Talningu lokið og strembin stjórnarmyndun fram undan

IcelandBy Fréttastofa RÚVOct 30, 2026, 1:35 AM
Talningu lokið og strembin stjórnarmyndun fram undan
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDOct 30, 2026, 1:35 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Öll atkvæði hafa verið talin í Ísrael. Likud, flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra, fékk 27 þingsæti og stjórnarblokk hans er með alls 53 sæti. Það dugir þó hvergi nærri til þar sem 61 sæti þarf til að ná þingmeirihluta. Yashar-flokkur Gadi Eisenkots er með 21 sæti en alls er stjórnarandstöðublokk hans með 48 sæti. Arabískir flokkar bæta við sig sögulega mörgum þingsætum en þeir halda þeim 19 sætum sem fyrri niðurstöður bentu til. Fylgi þeirra tvöfaldast næstum á milli ára en í fyrra voru flokkarnir með tíu sæti samtals. Flokkarnir eru tveir, Sameiginlegi listinn sem er nú með tólf þingsæti og Ra'am sem er með sjö sæti.

Arabaflokkar sakaðir um kosningasvindl Aukning á fylgi arabaflokkanna skýrist helst af því að kjörsókn araba í Ísrael jókst um 50% í nýafstöðnum kosningum. Bæði Netanjahú og Eisenkot hafa þó þvertekið fyrir að mögulegt sé að vinna með arabaflokkum. Í gær fóru sögusagnir á kreik um að kosningasvindl skýrði þessa miklu fylgisbreytingu. Þær sögusagnir voru raktar til herbúða flokks Netanjahús en ásakanirnar sneru að því að flokkarnir hefðu þegið fjárstuðning frá Katar. Bæði flokkarnir og katörsk stjórnvöld neituðu því að nokkuð slíkt hefði átt sér stað. Eisenkot sakaði Netanjahú um tilraun til að ógilda kosningarnar. Verið er að rannsaka málið en ólíklegt…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS