Taka þarf betur utan um börn með erlendan bakgrunn
What the source reports
Mikilvægt er að taka sérstaklega utan um börn með erlendan bakgrunn, bæði félagslega og í námi, segir Fríða Bjarney Jónsdóttir samhæfingastjóri MEMM-verkefnisins hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Aðeins 28% nemenda með erlendan bakgrunn búa yfir grunnfærni í lesskilningi. Hlutfallið er hærra meðal þeirra sem fæddust hér á landi eða 34% en aðeins 16% nemenda sem fæddust erlendis hafa grunnfærni í lesskilningi. Til samanburðar hafa 68% prósent allra nemenda sem ekki hafa erlendan bakgrunn grunnfærni í lesskilningi. Einnig er talsverður munur á vísindum og stærðfræðilæsi. Helga Birgisdóttir, lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands, segir niðurstöðurnar ekki koma á óvart. Þær séu sambærilegar útkomu úr fyrri fyrirlögnum PISA og sýni heilt yfir að styrkja þurfi grunnstoðir menntakerfisins. Þörf sé á langtímaáætlun frekar en skyndilausnum.
Nemendur með erlendan bakgrunn sé sístækkandi hópur í skólakerfinu og taka þurfi betur utan um hann, bæði námslega og félagslega. Börn með erlendan bakgrunn komu verr út úr öllum matsþáttum en önnur börn í nýrri PISA-könnun. Sérfræðingur hjá MMS segir ekki síður mikilvægt að styðja við þau félagslega en námslega, ábyrgðin verði að vera samfélagsleg. MEMM-verkefnið hjá Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu byggist á fræðslu og ráðgjöf til skóla og sveitarfélaga um menntun, móttöku og menningu barna með erlendan bakgrunn. Það hefur verið í þróun í tvö ár. Líklegri til að vera einmana og finnast þau ekki tilheyra Fríða Bjarney, sem er samhæfingastjóri verkefnisins, segir ábyrgðina sameiginlega og samfélagslega. Horfa þurfi heildstætt á stöðu barna með erlendan bakgrunn, ekki aðeins námsárangur. Þetta sé gríðarlega fjölbreyttur hópur sem mælist þó verr í farsæld en önnur börn. „Það er líklegra að þau upplifi sig einmana, ekki tilheyra,…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗