One world · 249 countries · Every country has a place in the news
AboutContactAdvertiseRSSSubmit News
ADVERTISING OPPORTUNITYYour business deserves global visibilityCHECK AVAILABILITY
LATEST
HomeIcelandSundursprengdu hafmeyjarbrotin sem eru í dag stofustáss

Sundursprengdu hafmeyjarbrotin sem eru í dag stofustáss

IcelandBy Fréttastofa RÚVSep 11, 2026, 7:00 AM
Sundursprengdu hafmeyjarbrotin sem eru í dag stofustáss
NEWS DESKIceland
PUBLISHEDSep 11, 2026, 7:00 AM
NEWS BRIEF

What the source reports

Tvö vegleg brot úr höggmyndinni Hafmeyjunni eftir Nínu Sæmundsson eru þessa dagana á Listasafni Reykjanesbæjar á sýningunni Nína, okkar kærasta Nína. Styttan var sprengd í loft upp 'i Reykjavíkurtjörn á nýársnótt 1960, brotin úr henni varðveittust og eru í fyrsta skipti á formlegri sýningu. Þetta eru vegleg brot, annað er efri hluti hafmeyjunnar og hitt endinn á sporðinum. Brotin eru skráð í vörslu Listasafns Reykjavíkur en á sýningunni stendur samt sem áður skýrum stöfum að þau séu í einkaeigu. Í faðmi fjölskyldu Nínu á Suðureyri Helga Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Reykjanesbæjar, vissi fyrst fyrir stuttu að þessi brot væru til þegar sýningarstjórar sýningarinnar bentu henni á skráningu þeirra í Listasafni Reykjavíkur. Þá hafði hún samband við listasafnið og óskaði eftir að fá brotin lánuð.

„Yfirmaður safneignar segir já, ekkert mál en segir svo að brotin séu á sýningu á Suðureyri og að það sé löng saga að segja frá því. “ Helga hringir næst á Suðureyri og heldur að hún sé að hringja í flutningamann til að koma með brotið suður. Hún áttaði sig ekki á því fyrr en eftir talsverð samskipti að brotin hefðu verið á Suðureyri í aldarfjórðung í vörslu Elíasar Sæmundsson Guðmundssonar og fjölskyldu hans. Nína var nákominn ættingi þeirra. Elías er sem sagt maðurinn sem lánaði Listasafni Reykjanesbæjar brotin með því skilyrði að þau yrðu merkt í einkaeigu. Í eigu hans. Í porti með sorpi Ástæðan fyrir því að Elías hefur brotin í fórum sínum er að föðurbróðir hans vann reglulega fyrir Listasafn Reykjavíkur í kringum aldamótin. Elías segir að einn daginn hafi hann átt að fjarlægja rusl úr porti. Hann er beðinn um að fara með rusl á haugana og brotin, brjóstmyndin og sporðurinn, voru partur af þessu rusli sem hann var beðinn um að farga. Þá hafi frændinn spurt hvort hann mætti…

MORE CONTEXT

Continue with related coverage

Main source: RÚV

TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.

Read the complete report ↗
KEEP READING

More news from this desk

← RETURN TO ICELAND NEWS