„Suðurland er lífæð höfuðborgarsvæðisins“
What the source reports
Frumvarp um náttúru- og innviðagjald verður lagt fram á Alþingi á næstunni. Áformin sættu töluverðri gagnrýni í samráðsferli og ráðherra skoðar hvort hægt sé að koma til móts við þá gagnrýni, meðal annars hvort náttúrupassinn gildi á fleiri staði. Í drögum að frumvarpinu er lagt til að erlendir ferðamenn greiði 4. 500 krónur fyrir náttúrupassa sem gildir í eitt ár og veitir aðgang að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum. Á ársfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga í síðustu viku var þess krafist að ríkið falli frá áformum um sérstaka gjaldtöku á þessum stöðum. Þá var sívaxandi álögum ríkisvaldsins á atvinnulíf og samfélög á Suðurlandi, líkt og það var orðað í tilkynningu, harðlega mótmælt. Fjallað var um þessi mál í Vikulokunum þar sem rætt var við Harald Þór Jónsson, oddvita í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur, þingmann Samfylkingarinnar.
Oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps segist hafa þungar áhyggjur af áhrifum náttúru- og innviðagjalds á Suðurland. Sækja eigi helming nýrra skatttekna í Suðurkjördæmi. Þingmaður kjördæmisins segir skynsamlegt að fá fram greiningar á áhrifunum. Telur ríkið verða af tekjum við breytingarnar „Í boðuðum tekjuöflunaraðgerðum í fjárlagafrumvarpinu, sem eru upp á rúma 22 milljarða, eftir okkar útreikninga, er tæplega helmingur af þeirri upphæð sem á að sækja beint í Suðurkjördæmi. Upphæðirnar eru af svo ofboðslega stórum skala í öllu samhengi að bara boðaður náttúrupassi sem á að innheimta á takmörkuðu svæði á Suðurlandi er hærri upphæð en samanlagðar tekjur allra sveitarfélaga á Suðurlandi af ferðaþjónustu,“ segir Haraldur sem segir sveitarfélög hafa þungar áhyggjur af stöðunni. Almennt séu sveitarfélögin ekki á móti því að aukin gjaldtaka sé af ferðamönnum. „Við teljum aftur á móti, eins og þetta er sett…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗