Styrkja fjarskipti á fimm stöðum á landinu
What the source reports
Byggja á upp og styrkja fjarskiptainnviði á fimm stöðum á landinu. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði tvo samninga þess efnis í dag. Annar samningurinn er við sveitarfélagið Borgarbyggð um bætta farnetsþjónustu í sveitarfélaginu. Hinn er við Öryggisfjarskipti og snýr að eflingu fjarskiptainnviða á fjórum svæðum á Vestfjörðum, Vesturlandi og Austurlandi.
„Verkefnin miða öll að því að bæta útbreiðslu farnets og auka öryggi fjarskipta en framlög ráðuneytisins til þeirra nema samtals 37,1 milljón kr. Undirbúningur er hafinn og stefnt að verklokum vorið 2027,“ segir í tilkynningu frá innviðaráðuneytinu. Á Mýrum á að reisa nýjan sendastað nærri Staðarhrauni. Þetta er gert til að bæta almenna farnetsþjónustu og möguleika á neyðarsímtölum sunnan…
TDBN presents the written preview supplied through the publisher's feed. Complete reporting, continuing updates, context, and corrections remain with the original report.
Read the complete report ↗